Vöruflokkar
• Heil parma læri |
Parmaskinkan okkar kemur frá Brianzasalumi í Parma á Ítalíu, fyrirtækið er 30 ára gamalt og er stofnað af Lugi Vismara og er rekið og stjórnað af sonum hans sem eru hoknir af reynslu og umhyggja fyrir sinni vönduðu vöru.
Parma Disossato Piatta er virkilega bragðgóð og vönduð hágæðavara, rétt mátulega sölt og án beins. Lærin eru frá 6,5 upp í 7,5 kg og er líftími vörunar 6 mánuðir.
Leyndarmálið að góðri parmaskinku liggur í löngum og ströngum hefðum og flóknu ferli,svín af tegundunum Landrance og Duroc frá norður Ítalíu eru eingöngu notuð til framleiðslu á Parma skinkunni. Svínunum er slátrað þegar þau hafa náð níu mánaða aldri og lágmarks þyngd sem er 140 kg.
Upppskriftin er kannski ekki svo ýkja flókinn en hún er tímafrek. Galdurinn er svínslæri, salt, loft, nægur tími og natni. Öll notkun af nítriti, sykri, reyk og öðrum ábötum er bönnuð.
Parmaskinka hefur verið framleidd í héraðinu síðan fyrir krist eða allt frá tímum Cato .
Parma lærin eru söltuð og pressuð til að ná úr þeim sem mestu af vökva. Eftir það vandasama ferli við söltunina sem er stýrt af "Maestro Saltore" eða salt meistara sem nuddar saltinu í kjötið og eftir það eru lærin þvegin.
Eftir söltunina og þvottinn tekur þurrkunin við sem varir í minnsta lagi 12 mánuði og allt upp í 30 mánuði, þar sem hlýir vindar parmahéraðsins eru látnir umleika vöruna.