Vöruflokkar
• Epla, kirsuberja, Plómu og Eldiberja edik
• Cider |
Sælkerinn hóf síðastliðið sumar innflutning á þessum frábæru dönsku sælkeravörum frá Meyer’s Madhus.
Vörurnar eru framleiddar undir tryggri handleiðslu Claus Meyer. Claus hefur þróað fjöldann allann af flottum vörulínum. Þar má nefna sultur, marmelaði og ávaxtaedik ásamt ýmsu fleiru. Allt er þetta framleitt úr fyrsta flokks sérvöldu hráefni sem er í flestum tilfellum danskt.
Það hefur sýnt sig á frábærum viðtökum hjá matgæðingum, kokkum og sælkerum að þessar vörur eru kærkomin viðbót í annars ágæta vöruflóru landans.
Til dæmis eplasafinn ( Æblemost) sem er kaldpressaður, gerilsneyddur og án viðbætts sykurs framleiddur úr eplum af ökrum Vigmosegards á Lilleö, sem er minnst byggðra danskareyja með einungis 15 íbúa. Lega eyjarinnar gerir það að verkum að þar er meðalhiti 1-2 c° hærri en annar staðar í Danmörku og gefur þar að leiðandi mun betri uppskeru.
Meyers Madhus er einnig með gríðarlega metnaðarfulla framleiðslu á sultuðu grænmeti. Þar má nefna tegundir eins og lífrænt ræktað rauðkál með eplum og allrahanda, smáar agúrkur með pipar, humlum og eplacider, rauðrófur með sólberjum, piparrót og eplaediki.
Síðast en ekki síst hin stórgóðu epla og plómu sýróp, sem eru frábær braðauki í alla alvöru matreiðslu, einnig frábær sætugjafi út á morgunmatinn t.d. súrmjólk eða þykkmjólk, ein með eftirréttum eins og pönnukökum, lummum og til að glassera osta t.d. camembert.
Þess má geta að vörurnar frá Meyers madhus fást í verslunum Hagkaupa.
|