Sælkerinn
 

Áfengi
Vöruflokkar
• Sake
• Shochu
• Japanskur bjór
Áfengi

Sake og bjór









Áfengi














Áfengi
Við bjóðum upp á breytt úrval af Sake, Shochu og japönskum bjór. Einnig erum við með ítalskt eðal rauðvín frá Toscana.

Rétt eins og það þarf góða þrúgu til að gera gott vín þarf góð hrísgrjón til að gera gott Sake. Við erum eingöngu með Sake í hæsta gæðaflokki.

Sake í góðum gæðum á að drekkast kalt. Einnig hefur verið mikil stemning fyrir kokteilum sem innihalda sake. Yuzu Sake hefur t.d. alveg slegið í gegn hjá okkur í kokteilagerð.

Shochu er yfirleitt í meiri styrkleika en Sake og er bruggað úr byggi, sætum kartöflum eða hrísgrjónum. Það hafa sprottið upp þó nokkrir Shochu barir í stórborgum eins og London.  Þar tíðkast að servera Shochu bæði í formi kokteila eða einfaldlega "on the rocks" .

Í bjórnum erum við með Ashai dry og Ashai kuro nama sem er dökkur og minnir að sumu leyti á Guinness, en sumir sælkerar telja sig finna bragð af soya! Einnig erum við með Iki beer sem er ljós, japanskur bjór bragðbættur með yuzu og green tea.

Rauðvínið er Brunello di Montacino frá Toscana sem er flagg skipið frá litlum en mjög metnaðarfullum framleiðanda. Einnig verðum við með Rosso di Montalcino frá sama birgja.

 
 
 


 
-